Saturday, June 17, 2006

17. júní

Jeyy Ísland vann Svíþjóð í handbolta og það á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Þjóðremban er að fara með mig.

Vinnutörnin er búin núna, mun núna einungis vinna 8 tíma á dag eins og venjan er. Nú er bara að bíða spennt eftir útborgun.

Útskriftin mín er á laugardaginn, ég á enn eftir að bjóða öllum. Verð að fara að rumpa því af svo fólkið geti nú komið til veislunnar. Mamma hefur greinilega tekið mark á orðum mínum hér að neðan en hún keypti mjög flottan kjól sem ég ætla að nota á laugardaginn.

Hef ekkert að segja, óska ykkur bara gleðilegs þjóðhátíðardags og sigurs í handbolta

0 Comments:

Post a Comment

<< Home